Auka-Átak í STÆ103
29.11.2011
Nú er orðið fullt í átaksnámskeiðið í STÆ103 sem halda á laugardaginn 3. desember. Því höfum við ákveðið að bæta við öðru námskeiði daginn eftir, sunnudaginn 4. desember.
Eins og á fyrra námskeiðinu verður farið yfir öll helstu atriði sem nemendur í 3. bekk þurfa að kunna skil á fyrir jólaprófið í stærðfræði.
Hvenær: Sunnudaginn 4. desember frá 9:00 – 13:30
Hvar: Hagaskóla – Gengið er inn um aðalinngang Fornhagamegin
Þátttökugjald: 7.500 kr
Skráning fer fram með því að senda tölvupóst á netfangið atakshelgi@gmail.com.




