Hin stórkostlega sýning Bugsy Malone hefur loksins snúið aftur! Söngleikurinn gerist á þriðja ártugnum í útjaðri New York, þegar deilur á milli glæpagengja í borginni stóðu sem hæst. Sagan segir frá lífi hins töfrandi Bugsy Malone og hvernig hann flækist inn í deilur hrottans Samma feita og þrjóta hans gegn glæpagengi Siggu sækó. Líf Bugsy er ekki einungis barátta og stríð vegna þess að hann kemst í kynni við ástina á leiðinni, þar fá árhorfendur að kynnast hinni heillandi Tallúlu og hinni ljúfu Blousey. Bugsy Malone var fyrst sett upp árið 1976 og síðan þá hefur söngleikurinn verið settur upp út um allan heim og slegið rækilega í gegn. Nemendur Verzlunarskólans eru nú að sýna þessa bráðskemmtilegu sýningu fyrir alla fjölskylduna sem margir hafa beðið eftir! Sýningin býður upp á lifandi tónlist og grípandi dansatriði sem allir ættu að hafa gaman af. Listrænu stjórnendurnir eru allir fremstir á sínu sviði; leikstjóri er Gunnar Helgason, Stella Rósenkranz er danshöfundur sýningarinnar og Valdimar Kristjónsson og Þórður Gunnar Þorvaldsson sjá um tónlistarstjórn.
http://www.youtube.com/watch?v=jE2vyGSbUVM MIÐASALAN BYRJAR 12. DES KL. 13:00 Á MARMARANUM!! BYRJAR KL 12 á ÞRIÐJUDAG & MIÐVIKUDAG. ÞÁ ER LÍKA UTANSKÓLAMIÐASALA Jólin eru á næsta leiti og það þýðir aðeins eitt: Fá sér, ná sér og fara hjá sér. Samt ekki fá sér (ölvun ógildir miðann). Jólaball NFVÍ verður haldið hátíðlegt á sveitarkránni Ásláki í Mosfellsbæ, froðudiskó og DJ Óli Geir þeytir skífum. Samt ekki. ----------- En að alvöru málsins, ballið verður haldið í Súlnasalnum sem er einn flottur staður. Svitabandið ásamt Sigríði Thorlacius (hálfsystir Magnúsar Thorlacius) spilar. DJ Jay O þeytir skífum Skólahljómsveitin og Ívarsmenn Miðaverð: 2000 kr. fyrir Verzlinga (og FMos) - 2500 kr. fyrir aðra Byrjar 22.00 og lýkur 01.00 3. bekkur mætir milli klukkan 22:00 – 22:30. 4. bekkur mætir milli klukkan 22:30 – 23:00. 5. bekkur mætir milli klukkan 23:00 – 23:30. 6. bekkur mætir milli klukkan 23:00 – 23:30. Ekki vera hýr, sýndu hvað í þér býr. Stjórn NFVÍ.
Jeeee boiiii! Annar 12:00 þáttur vetrarins er kominn á netið. Við höfum gert ýmsar breytingar á þættinum frá því að hann var frumsýndur í Bláa sal í Verzló. Til að mynda er busaferðin í þessari lokaútgáfu en hún fór ekki í bláa sal af einhverjum dularfullum ástæðum. Svo má einnig sjá einhverjar lagfæringar á sketsum. Við viljum nýta tækifærið til að þakka öllum þeim sem hjálpuðu okkur við gerð þáttarins. Einnig viljum við benda ykkur á facebook síðu okkar www.facebook.com/tolfnullnull en þar setjum við inn ýmislegt aukaefni tegnt gerð þáttarins. 12:00 Gjöriði svo vel!
Laugardaginn 3. desember munum við bjóða upp á námskeið þar sem farið verður yfir öll helstu atriði sem nemendur í 3. bekk þurfa að kunna skil á fyrir jólaprófið í stærðfræði. • Farið verður vel yfir lykilatriði námsefnisins auk klassískra prófdæma. • Nemendur verða látnir reikna gömul prófdæmi auk frumsaminna dæma í svipuðum dúr. Á meðan ganga kennarar á milli og aðstoða nemendur.






