02 Sept, 2021
Nafn: Kári (XD) Freyr Kristinsson Bekkur: 3.F(orseti) Uppáhalds nefnd: Möndlunefnd Stjörnumerki: Steingeit Hjúskaparstaða: Föstu Uppáhalds kennari: Íslensku drottningin Guðrún Ingibjörg Besta við Verzló hingað til: Námið Hvar sérðu þig eftir 5 ár: Smokin´ hot legally blonde :) Hvað tekur langan tíma að gera hárið svona fullkomið: me B esta Verzló minningin: Nemó 2020 Jæja góðir Verzlingar, við kynnum formlega til leiks fyrsta Verzling vikunnar skólaárið 2021-2022. Verzlingur vikunnar er ekki af verri endanum en hann hefur svo sannarlega komið sér vel fyrir í hjörtum okkar allra. Það er enginn annar en Kári Freyr Kristinsson en eins og margir vita þá er Kári forseti nemendafélagsins á þessu skólaári. Rætt var við Kára Frey eða Daddy Prez eins og hann kýs að láta kalla sig. Kári er einn af fjölmörgum forsetum Verzlunarskóla Íslands í gegnum árin, en sker sig úr með því að vera fyrsti opinberlega samkynhneigði forsetinn sem skólinn hefur haft. Hans helstu áhugamál eru stjórnmál, að drekka mjólk, greiða sér og vera stjórnsamur. Hans helsti ótti er að peake-a í menntaskóla en það mætti nú segja að hann sé á góðri leið að ná þeim áfanga. Þrátt fyrir það bindum við miklar væntingar við framtíð Kára enda er hann ansi efnilegur strákur. Aðspurður að því hvað hann vilji gera í framtíðinni segist Kári stefna lengra í stjórnmálum og hyggst ætla að ná því markmiði að verða forseti Alþingis. Kári var alinn upp til þess að taka við stöðu forseta NFVÍ og hefur hann undirbúið sig í mörg ár. Það hefur svo sannarlega skilað sér því að hingað til hefur hann óaðfinnanlegt orðspor.