Lög

  • Nafn og tilgangur

    1. grein

    Félagið heitir Nemendafélag Verzlunarskóla Íslands, skammstafað N.F.V.Í. Heimili þess er Ofanleiti 1. Varnarþing þess er í Reykjavík.


    2. grein    

    Meðlimir N.F.V.Í. eru allir þeir dagskólanemendur Verzlunarskóla Íslands sem greitt hafa árgjald til félagsins. Ársgjöldin ákvarðar Forseti í samráði við Féhirði og skólastjóra. Þeir nemendur sem ekki vilja vera í N.F.V.Í. geta sótt um endurgreiðslu ársgjaldsins til Stjórnar nemendafélagsins. Félagsgjöld eru innheimt um leið og skólagjöld.


    3. grein

    Nefndarmeðlimir N.F.V.Í. verða að vera meðlimir N.F.V.Í. Hlutverk N.F.V.Í. er að efla félagsþroska nemenda, tengsl þeirra innbyrðis, kynni þeirra við aðra skóla og gæta hagsmuna þeirra innan skólans.


  • Stjórnskipan

    1. grein

    Stjórn N.F.V.Í. skal skipuð tíu einstaklingum. Stjórnina skipa Forseti, Féhirðir, Markaðsstjóri, Formaður Málfundafélags, Ritstjóri Verzlunarskólablaðsins, Formaður Nemendamótsnefndar, Ritstjóri Viljans, Formaður Íþróttafélags, Formaður Listafélags og Formaður Skemmtinefndar. Stjórn N.F.V.Í. hefur æðsta vald í málefnum félagsins.


    2. grein

    Formönnum nefnda er heimilt að víkja nefndarmönnum úr nefnd sinni, ef rík ástæða þykir til, þó ekki nema með samþykki Forseta og meirihluta nefndarinnar.


    3. grein

    Hverri nefnd er heimilt að taka inn í nefndina tvo eða þrjá aðila, þó með samþykki Forseta og meirihluta nefndarinnar.


    4. grein

    • A - Ef Stjórnarmaður lætur af störfum eða fellur frá, skal sitjandi Stjórn skipa arftaka hans. Skal sá aðili sitja sem löglegur Stjórnarmaður til næsta aðalfundar. Forseti N.F.V.Í. situr sem oddamaður Stjórnar ef kemur til atkvæðagreiðslu níu manna Stjórnar og sem slíkur hefur hann oddaatkvæði. Ef Forseti lætur af störfum eða fellur frá skal Féhirðir sitja sem oddamaður Stjórnar og sem slíkur hafa oddaatkvæði.
    • B - Ef Forseti eða Féhirðir fara frá störfum tímabundið tekur hinn aðilinn við á meðan.

    5. grein

    Stjórn N.F.V.Í. skal sjá til þess að þrifnaði og hreinlætis sé gætt í Nemendakjallaranum. Hefur hún refsingarvald gagnvart nefndum sem ekki taka til eftir sig, hafi sú nefnd verið við vinnu í nemendakjallararnum.


  • Merki

    1. grein

    • A - Merki N.F.V.Í. skal vera merki Verzlunarskóla Íslands umvafið lagerkransi.
    • B - Merkið skal vera tákn N.F.V.Í. og vera notað sem slíkt hvenær sem kostur gefst á því.
    • C - Öll meðferð og notkun á merki N.F.V.Í sem rýrir traust félagsins eða vanvirðir er með öllu óheimil.

  • Kosningar

    1. grein

    • A - Kosning í Stjórn og nefndir N.F.V.Í. skal fara fram daginn fyrir aðalfund og samdægurs honum.
    • B - Allir félagar í N.F.V.Í. hafa kosningarétt.

    2. grein

    • A - Kosning skal vera leynileg og á kjörklefinn að vera opinn frá klukkan 09:15 til 14:45 báða kjördagana.
    • B - Frambjóðendur skulu kvöldi áður en kjörfundur hefst hafa lokið við að fjarlægja allar auglýsingar og annan kosningaáróður.
    • C - Verði frambjóðandi uppvís að broti á b-lið 2. greinar kosningalaga skal hann áminntur opinberlega af kjörnefnd. Verði frambjóðandi uppvís að endurteknum brotum á b-lið 2. greinar kosningalaga missir hann atkvæðisrétt og kjörgengi það árið.
    • D - Allir frambjóðendur til stjórnarnefnda fá tækifæri til að deila reynslu sinni og öðrum atriðum sem þeir vilja koma á framfæri til kjósenda á nfvi.is fyrir kosningar.

    3. grein

    • A - Nemandi hefur kosningarétt utan kjörfundar ef hann er í ferð eða öðrum erindagjörðum á vegum skólans á þeim tíma sem kosningar eru.
    • B - Nemenda er aðeins kleift að kjósa á ákveðnu tímabili sem að kjörnefnd ákveður og er framkvæmd utankjörfundaratkvæðagreiðslu alfarið í höndum kjörnefndar.
    • C - Til að auðvelda fyrir verður Kox-Viljinn birtur inn á nemendafélagssíðunni á rafrænu formi til að allir geti nálgast hann.

    4. grein

    • A - Verksvið Kjörnefndar er að sjá um kosningar í allar nefndir N.F.V.Í. og undirbúning þeirra. Að öðru leyti vísast til Laga um aðalfund.
    • B - Í Kjörnefnd sitja sex aðilar. Þeir eru: Forseti, sem jafnframt er oddamaður nefndarinnar, Formaður M.F.V.Í., Hagsmunaráð og tveir fulltrúar sem Stjórn skipar. Valdir fulltrúar í kjörnefnd skulu vera á 3. ári þegar kosningar fara fram.
    • C - Kjörnefnd getur skipað allt að 20 aðila til þess að aðstoða sig við talningu atkvæða. Viðkomandi aðilar mega þó ekki vera í framboði til Stjórnar né nefnda N.F.V.Í.
    • D - Fari Hagsmunaráðsfulltrúi í framboð skal hann afsala sér sæti sínu í Kjörnefnd og Stjórn skipi annan í hans stað.
    • E - Aðilar í Kjörnefnd og aðstoðarfólk kjörnefndar mega ekki hafa lýst yfir opinberum stuðningi við frambjóðendur.

    5. grein

    • A - Frambjóðendur skulu eigi síður en 15 dögum fyrir auglýstan aðalfund skila til kjörnefndar framboði og undirskriftum nemenda meðmælta framboðinu. Ef viðkomandi er að bjóða sig fram til Forseta eða Féhirðis, skal frambjóðandi skila inn 130 undirskriftum, þó ekki fleiri en 170. Fyrir framboð til annara Stjórnarembætta skulu frambjóðendur skila inn 100 undirskriftum, þó ekki fleiri en 130. Kjörnefnd skal síðan birta skrá yfir frambjóðendur og meðmælalista hið minnsta fimm dögum fyrir aðalfund.
    • B - Hverjum félagsmanni N.F.V.Í. er einungis heimilt að undirrita meðmælalista eins einstaklings í hvert Stjórnarembætti. Verði félagsmaður uppvís að brotum á þessari grein missir hann atkvæðisrétt.

    6. grein

    • A - Öllum félögum í 1. og 2. bekk er heimilt að bjóða sig fram í öll embætti, ef þeir fullnægja settum skilyrðum. Í Stjórnarembætti skulu frambjóðendur vera í 2. bekk þegar kosningar fara fram.
    • B - Komi aðeins einn frambjóðandi í embætti Forseta og Féhirðis þarf yfir 2/3 greiddra atkvæða til að hann hljóti kosningu. Nái frambjóðandi til þessara embætta ekki tilskyldum fjölda atkvæða skal boða til nýrra kosninga til viðkomandi embættis innan 7 skóladaga eftir aðalfund og skal kjörnefnd sjá um framkvæmd þeirra.
    • C - Komi aðeins einn frambjóðandi fram í önnur Stjórnarembætti, þarf yfir 2/3 greiddra atkvæða til að hann hljóti kosningu. Nái frambjóðandi ekki tilskyldum fjölda greiddra atkvæða skal nýkjörin Stjórn í samráði við viðkomandi nefnd, skipa nýjan aðila í embættið.

    7. grein

    Hverjum nemenda er einungis heimilt að bjóða sig fram í eina nefnd. Þó getur nemandi fengið undanþágu hjá Forseta til að sitja í annarri nefnd.


    8. grein

    Nemandi sem hlýtur kosningu í Stjórnarembætti skal komast upp um bekk að vori til að halda embætti, ef hann fellur, skal Stjórn skipa annan í hans stað skv. 4. grein í lögum um stjórnskipan.


  • Vantraust á embættismenn

    1. grein

    Allir félagar N.F.V.Í. hafa rétt til að bera fram vantrauststillögu á meðlimi Stjórnar.


    2. grein

    Flutningsmaður vantrauststillögu skal leggja fram undirskriftir minnst 200 félaga í N.F.V.Í. og skal þá fara fram leynileg atkvæðagreiðsla um vantraustið í umsjá hagsmunaráðs. Vantraust skoðast samþykkt ef vantrauststillagan fær 2/3 hluta greiddra atkvæða. Hagsmunaráð skal ganga úr skugga um lögmæti undirskrifta og vera framkvæmdaraðili við brottreksturinn.


  • Aðalfundur

    1. grein

    Einungis löglegir félagsmenn N.F.V.Í. hafa tillögurétt og atkvæðisrétt á aðalfundi félagsins.


    2. grein

    Ársskýrslur allra nefnda innan N.F.V.Í. skulu liggja frammi á aðalfundi.


    3. grein

    Dagskrá aðalfundar er sem hér segir:

    • A - Kosning fundarstjóra.
    • B - Skýrsla fráfarandi Stjórnar.
    • C - Endurskoðaðir reikningar félagsins kynntir.
    • D - Lagabreytingar.
    • E - Önnur mál.
    • F - Úrslit kosninga.

    4. grein

    Fráfarandi Forseti skal fyrir hönd fráfarandi Stjórnar fara yfir ársskýrslu félagsins og fráfarandi Féhirðir skal gefa upp stöðu reikninga félagsins.


    5. grein

    •  A - Verði ólæti og frammíköll á fundi má fundarstjóri vísa hlutaðeigandi aðila eða öllum af fundi, gera hlé á fundi eða slíta honum ef svo ber undir.
    • B - Tillögur skulu berast munnlega eða skriflega til fundarstjóra, áður en mælendaskrá er lokað. Mælendaskrá skal lokað með ekki minna en 10 mínútna fyrirvara.
    • C - Fundarmaður getur borið fram ósjálfstæða tillögu, þ.e.: breytingartillögu, viðaukatillögu, frávísunartillögu eða frestunartillögu, við hvert það mál sem til umræðu er á aðalfundi eða lagabreytingafundi. Slíkar tillögur skulu almennt vera skriflegar. Fundarstjóri ákveður í samræmi við almenn fundarsköp hvaða röð og með hvaða hætti tillögur eru teknar til afgreiðslu. Frávísunartillögur og aðrar dagskrártillögur skal bera upp fyrst. Sé frávísunartillaga samþykkt er málið þar með úr sögunni. Breytingartillaga við aðaltillögu er borin upp á undan aðaltillögunni. Sé breytingartillagan samþykkt er aðaltillagan borin upp þannig breytt. Komi margar breytingartillögur fram er fyrst borin upp sú tillaga sem lengst gengur, þ.e. felur í sér mest frávik frá aðaltillögunni. Verði á engan hátt séð hvor eða hver af breytingartillögunum gengur lengst getur fundarstjóri gripið til þess ráðs að bera tillögurnar upp í þeirri röð sem þær komu fram. Komi fram viðaukatillaga er hún sjálfstæð viðbót við aðaltillöguna og skal bera hana upp á eftir aðaltillögunni. Sé aðaltillagan hins vegar felld er viðaukatillagan einnig úr sögunni, enda eru þá forsendur til afgreiðslu hennar brostnar.
    • D - Einfaldur meirihluti ræður úrslitum ósjálfstæðra tillagna.

    6. grein

    • A - Til að aðalfundur N.F.V.Í. teljist löglegur þurfa allir Stjórnarmenn að sitja fundinn. Ef Stjórnarmaður getur ekki setið aðalfund sökum forfalla verður hann að skipa fulltrúa á fundinn fyrir sína hönd.
    • B - Auk Stjórnarmanna þarf fjöldi löglegra félagsmanna í N.F.V.Í. á fundinn að nema að lágmarki tvöföldum fjölda Stjórnarmanna.

  • Lagabreytingar

    1. grein

    • A - Nemendur skulu skila lagabreytingartillögum til Hagsmunaráðs eigi síðar en miðnætti fyrir auglýstan aðalfund, lagabreytingafund eða aukalegs lagabreytingafundar. Hagsmunaráð skal annast kynningu tilagna sinna til lagabreytinga og annarra tillagna vel fyrir fundinn. Kosið skal um tillögur til lagabreytinga með almennum kosningum á aðalfundi eða aukalegs lagabreytingafundar. Til þess að tillögur til lagabreytinga skoðist samþykktar þarf einfaldur meirihluti greiddra atkvæða.
    • B - Hver lagabreytingatillaga skal vera rökstudd af sendanda. Sé tillagan nafnlaus skal nafnlaus rökstuðningur fylgja tillögunni.
    • C - Lagabreytingar taka tafarlaust gildi.

    2. grein

    Tveir lagabreytingarfundir skuli haldið í það minsta hvert skólaár, einn á haustönn og einn á aðalfundi.


    3. grein

    Stjórn N.F.V.Í. er heimilt að kalla til aukalegs lagabreytingafundar ef nauðsyn krefur eða 150 félagsmenn krefjast þess skriflega. Sá fundur skal auglýstur með viku fyrirvara og gilda um hann sömu reglur og um aðalfund eftir því sem við á.


    4. grein

    • A - Til að lagabreytingafundur N.F.V.Í. teljist löglegur þurfa allir Stjórnarmenn að sitja fundinn. Ef Stjórnarmaður getur ekki setið lagabreytingafund sökum forfalla verður hann að skipa fulltrúa á fundinn fyrir sína hönd.
    • B - Auk Stjórnarmanna þarf fjöldi löglegra félagsmanna í N.F.V.Í. á fundinum að nema að lágmarki tvöföldum fjölda Stjórnarmanna.

    5. grein

    Hagsmunaráð NFVÍ er heimilt að laga stafsetingar- og málfarsvillur í lagasafni N.F.V.Í..


  • Forseti og féhirðir

    1. grein

    Forseti er oddamaður Stjórnar og sér um skipulagningu félagslífsins í heild. Hann er milliliður skólastjórnar og nemenda. Forseti hefur yfirumsjón með öllu er snertir N.F.V.Í.


    2. grein

    Forseti skal sitja í Hagsmunaráði N.F.V.Í. Hann skal jafnframt sitja í kjörnefnd og vera oddamaður hennar.


    3. grein

    Forseti skal boða til Stjórnarfundar eigi sjaldnar en tvisvar í mánuði yfir skólatímann og eigi sjaldnar en þrisvar yfir sumarið. Forseti skal vera fundarstjóri á Stjórnarfundum nema hann kveði annan til.


    4. grein

    • A - Féhirðir skal hafa fjármál félagsins á hendi og úthluta fé til nefnda félagsins, í samráði við viðkomandi nefnd. Féhirðir skal hafa umsjón með fjármálum allra nefnda sem starfa innan N.F.V.Í. Féhirðir skal hafa eftirlit með bókhaldi Verzlunarskólablaðsins og Nemendamótsnefndar og sjá um sameiningu þeirra við bókhald N.F.V.Í.
    •  B - Féhirðir skal hafa eftirlitsskyldu jafnt með lausa- sem og fastafjármunum N.F.V.Í.
    • C - Féhirðir skal hafa yfirumsjón með gerð tækjaskrár og skal afrit hennar afhent nýkjörinni Stjórn á aðalfundi, skólastjóra og húsverði.

  • Markaðsstjóri

    1. grein

    • A - Hlutverk markaðsstjóra er að hafa yfirumsjón með öllu sem tengist auglýsingum og styrkjasöfnun innan N.F.V.Í. og vinna með öllum þeim nefndum sem þurfa á hjálp að halda.
    •  B - Hann skal sjá um að öllum markaðssamningum sem N.F.V.Í. gerir sé framfylgt.
    • C - Markaðsstjóri skal vera helsti milliliður við fyrirtæki og passa upp á að ekki verði ágreiningur á milli fyrirtækja um N.F.V.Í.
    • D -  Markaðsstjóri sér til þess að afsláttum og auglýsingum sé safnað fyrir nemendaskírteinin.

     

    2. grein

    Markaðsstjóri skal í samráði við Stjórn N.F.V.Í. skipa þann fjölda einstaklinga í markaðsnefnd sem þörf er á til að sinna markaðsmálum N.F.V.Í.


  • Miðstjórn

    1. grein

    Miðstjórn skipa: Stjórn N.F.V.Í., Hagsmunaráð N.F.V.Í., allar nefndir sem starfa á vegum N.F.V.Í.


    2. grein

    Hver nefnd skal undantekingarlaust skila skýrslu um störf nefndarinnar í lok kjörtímabils og skal sú skýrslu vera tilbúin á aðalfundi N.F.V.Í. ár hvert. Þar skal koma fram hvernig starfseminni var háttað og vinsamlegar ábendingar um hvað betur mætti fara. Ef nefndir sinna ekki þessari skyldu sinni, ber nýkjörinni Stjórn að ávíta þær opinberlega.


    3. grein

    Formenn allra minni nefnda skulu kynna fjárhagsáætlun fyrir Féhirði og markaðsstjóra í síðasta lagi í ágúst hvers skólaárs.


  • Stjórnarnefndir

    MÁLFUNDAFÉLAG


    1. grein

    Félagið heitir Málfundafélag Verzlunarskóla Íslands. Tilgangur félagsins er að gefa félagsmönnum kost á að æfa sig í ræðumennsku og framsögn. Félagið skal einnig styrkja málefnalega umræðu í skólanum og standa fyrir málfundum.


    2. grein

    Félagið skipa Formaður og þrír meðstjórnendur, Þeir skulu kosnir samkvæmt undirkaflanum um kosningar. Einnig má nefndin taka inn allt að fjóra aðra meðlimi í viðtölum.


    3. grein

    • A - M.F.V.Í. skal hafa yfirumsjón með innanskóla mælsku- og rökræðukeppni, BEKEVÍ. Keppnin skal haldin einu sinni á vetri.
    • B - M.F.V.Í. skal hafa yfirumsjón með innanskóla spurningakeppni, SPUR. Keppnin skal haldin einu sinni á vetri. Ef þurfa þykir getur M.F.V.Í. fengið 1-2 nemendur til að sjá um framkvæmd keppninnar.
    • C - M.F.V.Í. skal hafa yfirumsjón með MORFÍs og Gettu Betur fyrir hönd Verzlunarskólans.
    • D -  M.F.V.Í. skal hafa yfirumsjón með mælsku og rökræðukeppni milli félagsmanna N.F.V.Í., Mælskasti maður skólans. Keppnin skal haldin einu sinni á vetri.

    4. grein

    M.F.V.Í. skal hafa umsjón með aðalfundi N.F.V.Í. og skóla- og félagsmálafundi, í samráði við Forseta.



    LISTAFÉLAG


    1. grein

    Félagið heitir Listafélag Verzlunarskóla Íslands. Hlutverk þess er að glæða áhuga nemenda á listum, þroska listgáfur þeirra og fegurðarskyn.


    2. grein

    Félagið skipa Formaður og þrír meðstjórnendur, Þeir skulu kosnir samkvæmt undirkaflanum um kosningar. Einnig má nefndin taka inn allt að fjóra aðra meðlimi í viðtölum.


    3. grein

    • A - Listafélagið stendur fyrir listahátíð minnst einu sinni að vetri.
    • B - Listafélagið stendur fyrir stofnun leikhóps sem setur upp leikrit á haustönn.
    • C - Listafélagið ræður leikstjóra hverju sinni sem stendur fyrir vali á leikhóp í leikriti.

    VERZLUNARSKÓLABLAÐIÐ


    1. grein

    Nafn blaðsins er Verzlunarskólablaðið. Hlutverk blaðsins er að draga upp mynd af skólalífinu og þeim anda sem í skólanum ríkir hverju sinni, að kynna þau mál sem efst eru á baugi í skólanum hverju sinni og að efla tengsl við fyrrverandi nemendur skólans.


    2. grein

    Félagið skipa Ritstjóri og þrír meðstjórnendur, Þeir skulu kosnir samkvæmt undirkaflanum um kosningar. Einnig má nefndin taka inn allt að fjóra aðra meðlimi í viðtölum.


    3. grein

    • A - Ritstjóri er oddamaður ritstjórnar og hefur yfirumsjón með störfum hennar. Hann er ábyrgðarmaður blaðsins og hefur úrskurðavald um málefni þess.
    • B - Ritstjóri skipar fjármála-og markaðsstjóra í upphafi starfsárs í samráði við Féhirði og markaðsstjóra. Heimilt er að tveir einstaklingar innan nefndarinnar skipti þessu á milli sín. Fjármála- og markaðsstjóri sér um fjármál nefndarinnar sem og auglýsingasöfnun og skal hann í einu og öllu hlíta lögum um bókhald og endurskoðun N.F.V.Í.
    • C - N.F.V.Í. ábyrgist fjárhagsskuldbindingar blaðsins.

    4. grein

    Ritnefnd Verzlunarskólablaðsins skal í upphafi skólaárs sjá til þess að Snobbið, dagbók Verzlunarskólanema komi út. Snobbið skal innihalda lagasafn N.F.V.Í. að hverju sinni.



    NEMENDAMÓTSNEFND


    1. grein

    Nefndin heitir Nemendamótsnefnd N.F.V.Í. Hlutverk nefndarinnar er að undirbúa og halda nemendamót Verzlunarskóla Íslands.


    2. grein

    Félagið skipa Formaður og þrír meðstjórnendur, Þeir skulu kosnir samkvæmt undirkaflanum um kosningar. Einnig má nefndin taka inn allt að fjóra aðra meðlimi í viðtölum.


    3. grein

    • A - Formaður skipar gjaldkera í upphafi starfsárs í samráði við Féhirði. Sé gjaldkeri utan Nemendamótsnefdnar tekur hann sæti í henni.
    • B - Formaður nefndarinnar skal hafa samráð við gjaldkera nefndarinnar um allt það er að fjármálum nemendamótsnefndar lýtur.
    • C - Gjaldkeri sér um fjármál Nemendamótsins og skal hann í einu og öllu hlíta undirkafla um bókhald og endurskoðun þess.
    • D - Reikningar nefndarinnar skulu lagðir fram á næsta aðalfundi N.F.V.Í. eftir nemendamót. Þegar bókhaldi nemendamótsnefndar er lokið skal fjárhagur þess sameinast fjárhag N.F.V.Í.
    • E - Skipa skal ritara sem sér um að halda gerðarbók nefndarinnar.
    • F - N.F.V.Í. ábyrgist fjárhagsskuldbindingar Nemendamótsnefndar.

    4. grein

    •  Nemendamótið skal haldið í fyrstu viku febrúarmánaðar ár hvert.
    •  Nefndinni ber að bjóða eftirfarandi aðilum á leiksýningu nemendamótsnefndar: Fastráðnum kennurum, skólanefnd, formanni Verzlunarráðs, fyrrverandi skólastjórum, fyrrverandi nemendamótsnefnd.


    ÍÞRÓTTAFÉLAG


    1. grein

    Félagið heitir Örn N.F.V.Í. Skal það sjá um íþróttamál innan skólans og standa fyrir íþróttatengdum atburðum á starfsári sínu.


    2. grein

    Félagið skipa Formaður og þrír meðstjórnendur, Þeir skulu kosnir samkvæmt undirkaflanum um kosningar. Einnig má nefndin taka inn allt að fjóra aðra meðlimi í viðtölum.



    VILJINN


    1. grein

    Blaðið heitir Viljinn. Hlutverk þess er að fjalla um atburði innan skólans í máli og myndum. Blaðið skal jafnframt lýsa þeim anda sem ríkir innan skólans hverju sinni.


    2. grein

    Ritstjórn skipa Ritstjóri og þrír meðstjórnendur, Þeir skulu kosnir samkvæmt undirkaflanum um kosningar. Einnig má nefndin taka inn allt að fjóra aðra meðlimi í viðtölum.


    3. grein

    • A - Ritstjóri ber ábyrgð á efni blaðsins og skal hann sjá til þess að blaðið komi út á fyrirfram ákveðnum dögum.
    • B - Ritstjóri ákvarðar blaðafjölda hvern vetur í samráði við Forseta, Féhirði og ritstjórn.

    4. grein

    Öllum félögum í N.F.V.Í. er heimilt að rita í blaðið, en þó hefur Ritstjóri heimild til að hafna þeim greinum sem hann sér ekki ástæðu til að birta.



    SKEMMTINEFND


    1. grein

    Nefndin heitir Skemmtinefnd N.F.V.Í. Hlutverk hennar er að sjá um söngkeppnina Vælið og nýnemadaginn. Hún skal jafnframt standa fyrir fleiri atburðum sem þykja lyfta félagsanda nemenda.


    2. grein

    Félagið skipa Formaður og þrír meðstjórnendur, Þeir skulu kosnir samkvæmt undirkaflanum um kosningar. Einnig má nefndin taka inn allt að fjóra aðra meðlimi í viðtölum.



  • Hagsmunaráð

    1. grein

    Ráðið heitir Hagsmunaráð N.F.V.Í. Hlutverk þess er að standa vörð um hagsmuni nemenda skólans og beita sér fyrir umbótum í kennslumálum.


    2. grein

    Formaður Hagsmunaráðs er nemandi úr 3. bekk, tekin inn í viðtölum af stjórn NFVÍ og skal hann vera oddamaður ráðsins. Ráðið skal skipa forseta ásamt einum nemenda úr hverjum árgangi. Ráðinu er heimilt að taka inn fimm aðila til viðbóta, þó með samþykki meirihluta nefndar auk skólastjóra.


    3. grein

    • A - Ráðið skal vera tengiliður nemenda og skólayfirvalda og skulu þau leita til ráðsins eftir ályktunum um þau málefni sem nemendur snertir.
    •  B - Ráðið skal hafa félagslífið í stöðugri endurskoðun og veita Stjórnarmönnum aðhald. Árlega skal ráðið endurskoða Lagasafn N.F.V.Í. og bera fram tillögur til lagabreytinga eftir því sem ástæða þykir til.
    • C - Ráðinu er heimilt að fá menn til hjálpar í einstökum málum og sérmálum eftir því sem þurfa þykir.

    4. grein

    Ráðið skal sjá um að Lagasafn N.F.V.Í. sé gefið út á hverju ári og skal ráðið sjá til þess að allir félagar N.F.V.Í. eigi kost á að eignast það.


    5. grein

    Hagsmunaráð hefur aðgang að öllum þeim samningum sem gerðir eru af hálfu Stjórnar fyrir hönd N.F.V.Í. til að tryggja að hagsmunum nemenda sé framfylgt.


    6. grein

    Einn til tveir meðlimir Hagsmunaráðs fara yfir allt útgefið efni N.F.V.Í

  • Ritari Stjórnar

    1. grein

    Hlutverk ritara er að sjá um ritun fundargerða á Stjórnarfundum.


    2. grein

    Ritari Stjórnar er valinn af Stjórn N.F.V.Í. Hlutverk hans er að sjá um ritun fundargerða á Stjórnarfundum. Ritari skal afhenda hverjum Stjórnarmanni fundargerð síðasta Stjórnarfundar í síðasta lagi á næsta Stjórnarfundi.


    3. grein

    • A - Ritari situr Stjórnarfundi sem hlutlaus aðili, hvorki með tillögurétt né atkvæðarétt.
    • B - Ritari skal á aðalfundi skila af sér fundargerðum vetrarins, vandlega frágengnum og tilbúnum til geymslu í skjalasafn N.F.V.Í.
    • C - Ritari skal sjá til þess að fundargerðir verði gerðar aðgengilegar nemendum á vefsíðu nemendafélagsins eigi síður en 2 vikum eftir Stjórnarfund og skulu þær vera aðgengilegar þar allt fram til næsta aðalfundar.

  • Stjórnarskráin

    1.grein

     Hlutverk stjórnarskrárinnar er að vernda ákveðin lög N.F.V.Í.


    2. grein

    Til að breyta stjórnarskránni þarf að koma fram frumvarp á lagabreytingafundi sem felur í sér breytingar á henni, síðan þarf meirihluti stjórnar N.F.V.Í. og Hagsmunaráðs auk skólastjórnar að samþykja frumvarpið. Að lokum þarf frumvarpið að vera samþykt, með meirihluta, í kosningum á vegum Hagsmunaráðs þar sem kjörsókn þarf að ná 1/3 af nemendafélaginu.


  • Miðstjórnarnefndir

    VEFNEFND


    1. grein

    Nefndin heitir Vefnefnd N.F.V.Í. Hlutverk nefndarinnar er að sjá um uppsetningu og rekstur vefsíðunnar nfvi.is.


    2. grein

    Formaður er valinn af Stjórn N.F.V.Í. og skipar formaður í nefndina eftir því sem þurfa þykir.


    3. grein

    Formaður ber ábyrgð á vefnum og þeim upplýsingum sem á honum eru.


    4. grein

    Vefnefnd skal sjá til þess að í upphafi skólaárs verði vefsíðan nfvi.is komin upp. Á henni skulu símanúmer nemenda vera aðgengileg öðrum nemendum, þó verður hver nemandi að samþykkja að númer hans sé birt. Á síðunni skal ávallt vera hægt að búa til sinn eigin „targetlista“.



    SKÓLAHLJÓMSVEIT N.F.V.Í. 


    1. grein

    Nefndin heitir Skólahljómsveit Verzlunarskóla Íslands. Tilgangur hljómsveitarinnar er að virkja nemendur skólans til tónlistarþátttöku. Skal hún standa fyrir tónleikum og vera til taks ef aðrar nefndir óska eftir því.


    2. grein

    Formaður er skipaður af Stjórn og nefndarmeðlimir svo valdir eftir því sem þurfa þykir.



    VIDEONEFND


    1. grein

    Nefndin heitir Videonefnd. Hlutverk hennar er að sjá um alla myndbandavinnslu N.F.V.Í.


    2. grein

    Formaður nefndarinnar skal skipaður af Stjórn N.F.V.Í. Hann skal í samráði við Forseta velja þann fjölda nefndarmanna er þurfa þykir.


    3. grein

    • A - Formaður hefur umsjón og eftirlitsskyldu með tækjabúnaði Myndbandavinnslunefndar.
    • B - Formaður skal hafa á reiðum höndum lista yfir allan þann tækjabúnað er hann hefur í sinni umsjón.

    12:00


    1. grein

    Nefndin heitir 12:00. Hlutverk hennar er að gera frétta- og afþreyingarþáttinn 12:00.


    2. grein

    Formaður nefndarinnar skal vera skipaður af Stjórn N.F.V.Í. Hann skal í samráði við Forseta velja þann fjölda nefndarmanna er þurfa þykir.


    DEMÓ


    1. grein

    Nefndin heitir Demó. Hlutverk hennar er að standa fyrir tónsmíðakeppninni Demó ár hvert. Þar skulu einungis frumsamin lög taka þátt.


    2. grein

    Formaður Demó er valinn af Stjórn N.F.V.Í. Hann skal í samráði við Forseta og Formann Skemmtinefndar velja þann fjölda nefndarmeðlima sem þurfa þykir.



    FILMAN


    1. grein

    Filman er kvikmyndanefnd sem skal vinna markvisst að því að þroska kvikmyndaáhuga nemenda.


    2. grein

    Filman heldur utan um stuttmyndakeppnina Popp og Kók á vorönn hvers skólaárs.



    SIMPSONS-MOVIE Á ÍSLENSKU NEFNDIN


    1. grein

    Nefndin heitir Simpsons-movie á íslensku-nefndin. Nefndin skal sjá til þess að Simpsons movie á islensku verði sýnd í bláa sal og á marmaranum allavega einu sinni á önn og helst eftir böll.

     

    2. grein

    Meðlimir nefndarinnar verða eingöngu þeir 10 sem eru bestir í að gera simpsons movie á islensku eftirhermur. Tvær bestu eftirhermurnar gegna formannssæti.


    3. grein

    Nefndin skal stuðla að aukinni vitneskju og almennri umfjöllun um simpsons movie á islensku innan N.F.V.Í.



    GRILLNEFND


    1. grein

    Nefndin hefur það hlutverk að grilla á ýmsum atburðum N.F.V.Í. sé þess óskað.


    2. grein

    Formaður er valinn af Stjórn N.F.V.Í.


    3. grein

    Ef veður leyfir skal grillnefnd fyrir alla muni bjóða nemendum endurgjaldslaust upp á grillaðar pylsur og svaladrykki daginn eftir öll böll.



    HJÁLPARSAMTÖK N.F.V.Í 


    1. grein:

    Starfræktur skal baukur á marmaranum þar sem vel staddir Verzlingar geta gefið frá sér afgangsklink sem verr staddir nemendur geta gengið í til að eiga efni á hádegismat.



    VERNDARAR WHISTLEJACKET


    1.grein

    Stofnað skal vera félag sem heitir Verndarar Whistlejacket


    2. grein

    Fyrstu meðlimir félagsins skulu vera allir sem voru í herbergi 501 á hostelinu í Róm í Listasöguferðinni 2018


    - sitjandi meðlimir sjá svo um að velja eftirmenn sína áður en þeir útskrifast. Tilkynnt verður um nýja meðlimi á uppgjöri NFVÍ.


    3. grein

    Félagið sér um að halda heiðri Whistlejacket á lofti innan Verzlunarskólans


    4. grein

    Félagið skal sjá til þess að eftirprent af málverkinu Whistlejacket eftir George Stubbs verði hengt í ramma á marmaranum. Félagið skal sjá til þess að málverkið muni aldrei verða tekið niður. Aldrei.


    5. grein

    Lagið Whistlejacket eftir Ola Claësson skal vera spilað við hátíðlega athöfn Verzlunarskólablaðsins, ef það er ekki munu Verndarar Whistlejacket brenna hvert einasta eintak Verzlunarskólablaðsins.



    KVASIR


    1. grein

    Blaðið heitir Kvasir. Það er frétta- og afþreyingasnepill N.F.V.Í.


    2. grein

    Ritstjórn blaðsins skipa ritstjóri, valinn af Stjórn og fjórir meðstjórnendur, valdir af ritstjóra og Forseta.


    3. grein

    • A - Ritstjóri ber ábyrgð á efni blaðsins og skal hann sjá til þess að blaðið komi út á fyrirfram ákveðnum dögum.
    • B - Ritstjóri skal gefa út 2 tölublöð eða fleiri á önn og ákvarða útgáfudaga hvers vetrar í samráði við Forseta, Féhirði og ritstjórn.

    LJÓSMYNDANEFND


    1. grein

    Nefndin heitir Ljósmyndanefnd N.F.V.Í. Hlutverk hennar er að sjá um allt ljósmyndaverk innan nemendafélagsins, nema aðila utan skóla sé óskað.


    2. grein

    Formaður er valinn af Stjórn N.F.V.Í. Hann skal í samráði við Forseta velja þann fjölda nefndarmeðlima sem þurfa þykir.



    JAKOBS LÖGIN


    1. grein

    Ef einstaklingur heitir Jakob og er búinn að vera með rosalega sítt hár ótrúlega lengi (tvö skólaár) skal sá hinn sami snoða sig við hátíðlega athöfn á marmaranum í GVÍ vikunni.



    EMBÆTTI GABRÍELS


    1. grein

    Gabríel hefur það hlutverk að leika á tilkynningartrompet N.F.V.Í. hvenær sem Forseti félagsins kemur opinberlega fram.


    2. grein

    Gabríel er valinn af Stjórn N.F.V.Í. Hlutverk Gabríels er ásamt því að tilkynna Forsetann með trompetleik að bera ábyrgð á tilkynningartrompetinu.



    KÓRNEFND


    1. grein

    Nefndin heitir kórnefnd N.F.V.Í. Hlutverk hennar er að halda utan um allt sem tengist Verzlunarskólakórnum.


    2. grein

    Formaður nefndarinnar skal skipaður af Stjórn N.F.V.Í. Hann skal í samráði við Forseta velja þann fjölda nefndarmanna er þurfa þykir.


    3. grein

    Nefndin skal ráða kórstjóra. Í samráði við skólastjórn, nefndin hefur yfirumsjón kórsins.



    GUNN JUNIOR LÖGIN


    1. grein

    Gunnar Sveinn Sigfússon skal ávallt hafa eitt laust sæti við hlið sér á atburðum í bláa sal fyrir egóið sitt, Gunna junior.



    NFVÍ TV


    1. grein

    Nefndin heitir NFVÍ tíví og hlutverk hennar er að mæta á helstu viðburði N.F.V.Í. Nefndin gefur út þætti með reglulegu millibili þar sem hún fer yfir fréttnæmt efni sem hefur átt sér stað í skólanum ásamt öðru afþreyingarefni.


    2. grein

    Formaður nefndarinnar skal skipaður af Stjórn N.F.V.Í. Hann skal í samráði við Forseta velja þann fjölda nefndarmanna er þurfa þykir.



    RJÓMINN


    1. grein

    Nefndin heitir Rjómi N.F.V.Í. Hlutverk hennar er að sjá um afþreyingar- og skemmtiþáttinn Rjómann.


    2. grein

    Formaður/formenn nefndarinnar skal skipa af Stjórn N.F.V.Í. Hann skal í samráði við Forseta velja þann fjölda nefndarmanna er þurfa þykir.


    3. grein

    Rjóminn þarf ekki að vera starftækur frá ári til árs en helst þó í lögum N.F.V.Í.



    ÚTVARPSNEFND 


    1. grein

    Nefndin heitir Útvarpsnefnd N.F.V.Í. Hlutverk hennar er að halda útvarpsvikuna á sitthvorri önninni. Einnig sér nefndin um að halda bílabíó.


    2. grein

    Útvarpsstjóri skal skipaður af Stjórn N.F.V.Í. Hann skal í samráði við Forseta velja þann fjölda nefndarmanna er þurfa þykir.



    MARMARINN


    1. grein

    Nefndin heitir Marmaranefnd. Hlutverk hennar er að halda viðburði á marmaranum, hafa tónlist á marmaranum og fleira.


    2. grein

    Formaður nefndarinnar skal skipaður af Stjórn N.F.V.Í. Hann skal í samráði við Forseta velja þann fjölda nefndarmanna er þurfa þykir.



    GÓÐGERÐARRÁÐ N.F.V.Í


    1. grein

    Nefndin heitir Góðgerðarráð Verzlunarskóla Íslands. Hlutverk ráðsins er að standa fyrir alls kyns uppákomum og fjáröflunum þar sem ágóðinn rennur til góðgerðarsamtaka sem ráðið velur á ári hverju.


    2. grein

    Formaður nefndarinnar skal skipaður af Stjórn N.F.V.Í. Hann skal í samráði við Forseta velja þann fjölda nefndarmanna er þurfa þykir.



    VERZLÓ WAVES


    1. grein

    Nefndin heitir Verzló Waves N.F.V.Í. Hlutverk nefndarinnar er að sjá um skipulagningu og framkvæmd Verzló Waves tónlistarhátíðarinnar.


    2. grein

    Formaður nefndarinnar skal skipaður af Stjórn N.F.V.Í. Hann skal í samráði við Forseta velja þann fjölda nefndarmanna er þurfa þykir.



    MARKAÐSNEFND


    1. grein

    Nefndin heitir Markaðsnefnd N.F.V.Í. Hlutverk hennar er að hjálpa öðrum nefndum að fjármagna starfsemi sína með því að safna styrkjum og selja auglýsingar.


    2. grein

    Nefndina skipa Markaðsstjóri og skal hann í samráði við Stjórn N.F.V.Í. velja þann fjölda meðlima er þurfa þykir.



    NÖRDAFÉLAG 


    1. grein

    Nefndin heitir Nördafélag N.F.V.Í. Hlutverk hennar er að halda LAN að minnsta kosti einu sinni á önn.

    2. grein

    Formaður nefndarinnar skal skipaður af Stjórn N.F.V.Í. Hann skal í samráði við Forseta velja þann fjölda nefndarmanna er þurfa þykir.


    3.grein

    Opinber skamstöfun Nördafélagsins er NFVÍ.



    SKÓLASÖNGUR NFVÍ


    1. grein

    Hún sagði er opinber skólasöngur NFVÍ



    LÖGSÖGUMENN


    1. grein

    Lögsögumenn er stuðningsnefnd N.F.V.Í. og heyrir nefndin undir Málfundafélagið. Hlutverk Lögsögumanna er að mæta á viðburði nemendafélagsins, stjórna klappliði þess og semja stuðningslög þegar á þarf að halda sem og hjálpa til í miðasölu. Nefndin skal vera stjórn innan handar við önnur verkefni eftir því sem þurfa þykir.


    2. grein

    Formaður nefndarinnar skal vera skipaður af Stjórn N.F.V.Í. Hann skal í samráði við Formann Málfundafélags velja þann fjölda nefndarmanna er þurfa þykir.


    3. grein

    Nefndin skal annast þrif Verzló-stuðningsmannabolanna.


    4. grein

    „Nefndin skal standa fyrir klappfundum á Marmaranum og kynna stuðningslög og áætlanir þeirra fyrir samnemendum fyrir hverja keppni.


    5. grein

    Að minnsta kosti 7 lögsögumenn skulu vera viðstaddir viðkomandi atburði; Morfís-keppnir, Gettu Betur keppnir, Ví-Mr daginn. 



    AUGLÝSINGARÁÐ


    1. grein

    Ráðið heitir Auglýsingaráð. Hlutverk þess er að auglýsa atburði N.F.V.Í. á þann hátt að tekið sé eftir í skólanum.


    2. grein

    Ráðið skipa formaður, valinn af Stjórn og hæfilegur fjöldi meðstjórnenda, valinn af formanni og Forseta.


    3. grein

    Formaður ber ábyrgð á að auglýsingar séu vel gerðar, settar upp áberandi stöðum og teknar niður innan sólarhrings eftir viðkomandi atburð.


    4. grein

    Auglýsingaráð skal sjá til þess að afslættir nemenda verði auglýstir innan veggja skólans.



    DEILDARSTJÓRN GRAFÍSKS HÖNNUNARSVIÐS


    1. grein

    • A - Nefndin heitir Deildarstjórn grafísks hönnunarsviðs. Hlutverk hennar er að sjá um uppsetningu á veggspjöldum, bæklingum og öðru efni sem gefið er út á vegum N.F.V.Í.
    • B - Nefndin sér einnig um uppsetningu og útgáfu nemendaskírteina. Í samráði við Markaðsstjóra og markaðsnefnd

    2. grein

    Nefndin er skipuð af Stjórn N.F.V.Í.



    VÉSTEINN


    1. grein

    Embættið heitir Vésteinn. Hlutverk þess er að hafa umsjón með allar tækjaeignir N.F.V.Í. og yfirumsjón með allri hljóðuppsetningu á viðburðum félagsins og halda skrá yfir þær og útlán þeirra. Einnig hafa yfirumsjón með allri hljóðuppsetningu á viðburðum félagsins.

     

    2. grein

    Stjórn N.F.V.Í. skipar í embættið.



    FEMÍNISTAFÉLAG N.F.V.Í. 


    1. grein

    Nefndin heitir Femínistafélag N.F.V.Í. Hlutverk nefndarinnar er að efla femíniska hugsun og halda úti umræðuvettvangi.


    2. grein

    Formaður er valinn af Stjórn N.F.V.Í. og velur hann þann fjölda nefndarmeðlima er þurfa þykir í samráði við Forseta.



    SKÁTAFÉLAG N.F.V.Í. 


    1. grein

    Nefndin heitir Skátafélag N.F.V.Í. Hlutverk nefndarinnar er að skipuleggja viðburði í tengslum við útivist og annað skátatengt.


    2. grein

    Formaður er valinn af stjórn N.F.V.Í. og velur hann þann fjölda nefndarmeðlima er þurfa þykir í samráði við Forseta.


     

    KENEM


    1. grein

    Nefndin heitir KeNem. Hlutverk nefndarinnar er að halda keppnir milli nemenda og kennara skólans.


    2. grein

    Formaður er valinn af stjórn N.F.V.Í. og velur hann þann fjölda nefndarmeðlima er þurfa þykir í samráði við Forseta.

     


    VEÐURSTOFA N.F.V.Í 


    1. grein

    Stofnunin heitir Veðurstofa N.F.V.Í. Hlutverk Veðurstofunnar er að fræða nemendur um veður á komandi dögum og gefa út veðurfréttaþátt.


    2. grein

    Veðurstofan samanstendur af veðurfræðingi og dagskrárgerðarmanni, valdir af Stjórn N.F.V.Í. Velja þeir þann fjölda nefndarmeðlima er þurfa þykir.


    3. grein

    Veðurstofunni er heimilt að fá utanaðkomandi aðila til þess að hjálpa með gerð þáttarins.


    4. grein

    Meðlimir Veðurstofunnar skulu vera ávarpaðir sem Veðurmenn á meðan þeir sinna störfum Veðurstofunnar.  


     

    EUROVISION NEFND 


    1. grein

    Nefndin heitir Eurovision nefnd N.F.V.Í.. Hlutverk nefndarinnar er að glæða áhuga nemenda á keppnini Eurovison.


    2. grein

    Nefndin skal berjast fyrir því að lokapróf skulu ekki haldin í eurovisionvikunni í maí stendur, fyrir hagsmuni nefndarinnar og skólasamfélagið.



    TETRIS NEFND 


    1. grein

    Nefndin heitir Tetris nefnd N.F.V.Í.. Hlutverk nefndarinnar er að vekja áhuga nemenda á Tetris.


    2. grein

    Nefndin mun standa fyrir árlegu tetris battle i. Einnig nefndin halda tetris námskeið þar sem að kenndar verðar leiðir til að verða betri í tetris. Nefndin mun af einnig bjóða upp á einkakennslu í tetris fyrir nýliða sem vilja bæta sig.


    3. grein

    Nefndin er undirnefnd íþróttafélagsins

  • Bókhald

    1. grein

    Féhirðir N.F.V.Í. skal halda bókhald N.F.V.Í. og skal það fært eftir almennum bókhaldsvenjum. Féhirðir skal einnig hafa yfirumsjón með sameiningu bókhalds Verzlunarskólablaðsins og Nemendamótsnefndar við bókhald N.F.V.Í. Gjaldkerar Nemendamótsnenfdar og Verzlunarskólablaðsins skulu skila bókhaldi sínu fullkláruðu til Féhirðis í því bóhaldsformi sem Féhirðir óskar í síðasta lagi 10 dögum fyrir aðalfund.


    2. grein

    Féhirðir skal skila milliuppgjöri í janúar á hverju ári og fullkláruðu bókhaldi fyrir 1. apríl á hverju ári. Féhirðir skal þó gera grein fyrir því á aðalfundi félagsins.


    3. grein

    Hagsmunaráð skal hafa aðgang að endurskoðun bókhalds N.F.V.Í., Verzlunarskólablaðsins og Nemendamótsnefndar. Hagsmunaráði er heimilt að fá utanaðkomandi aðila bókhaldið til endurskoðunar.

  • Jafnrétti

    1. grein

    N.F.V.Í. stefnir að jafnrétti í allri vinnu félagsins. Óháð aldri, kyni, kynhneigð, þjóðerni, litarafti, trú eða stjórnmálaskoðunum.


    2. grein

    N.F.V.Í. skal sjá til þess að halda uppi öflugri fræðslu um jafnréttismál.


    3. grein

    • A - Áreitni í garð ákveðinna hópa er ekki liðin innan N.F.V.Í. Er hún metin á eftirfarandi hátt.
    • B - Hvers kyns ósanngjörn og/eða móðgandi hegðun sem hefur áhrif á sjálfsvirðingu þess/þeirra sem fyrir henni verður eða/og er haldið áfram þrátt fyrir að gefið sé skýrt í skyn að hegðunin sé óvelkomin.
    •  C - Atvik sem leiða til eða gætu leitt til líkamlegs eða sálræns skaða eða þjáningu þolenda.
    • D - Hótun um slík atvik, þvingun eða handahófskennd svipting frelsis, bæði í einkalífi og á opinberum vettvangi.
    • E - Áreitnin getur verið líkamleg, orðbundin, eða táknræn.

    4. grein

    N.F.V.Í. skal vinna gegn neikvæðum staðalímyndum um hlutverk ákveðinna hópa.


    5. grein

    • A - Brot á fyrr nefndum lögum varðar við brottrekstur úr þeirri nefnd eða því verkefni sem brotið átti sér stað í.
    • B - Stjórn N.F.V.Í. , Feministafélag N.F.V.Í. , Hagsmunaráð N.F.V.Í. ásamt forvarnarfulltrúum og skólastjóra meta alvarleika brota.

    6. grein

    Þættir innan N.F.V.Í. skulu standast bechdel prófið. Reglan er því svohljóðandi:

    • A - Þátturinn verður að innihalda fleiri en tvo kvenmenn.
    • B - Þessir tveir kvenmenn þurfa að eiga samtal og samskipti í þættinum.
    • C - Þessi samskipti þurfa að snúast um eitthvað annað en karlmenn.”

    7. grein

    Forseti skal greina tölfræðiupplýsingar eftir kyni á aðalfundi.


  • Heiðursskjöl

    1. grein

    Skjölin heita Heiðursskjöl N.F.V.Í.


    2. grein

    Tilgangur þeirra er að heiðra þá nemendur í 3. bekk, er skarað hafa fram úr í félagslífi N.F.V.Í. á skólaferli sínum.


    3. grein

    Stjórn skal tilefna á hverju vori einn til fimm nemendur, sem að þeirra dómi hafa unnið best að málefnum félagsins. Forseta skal falið að afhenda skjölin við skólaslit á hverju vori.


  • Nefndaviðtöl

    1. grein

    Í viðtölum Stjórnarnefnda skulu öll viðtöl hljóðrituð. Allar spurningar lagðar fyrir viðmælanda skulu vera samþykktar af Forseta og Féhirði. Forseti og Féhirðir bera ábyrgð á að þessu sé framfylgt.


    2. grein

    Í viðtölum minni nefnda skulu öll viðtöl hljóðrituð. Allar spurningar skulu vera samþyktar af Stjórn N.F.V.Í. Stjórn N.F.V.Í ber ábyrgð á að þessu sé framfylgt.


    3. grein

    Ákvarðanir varðandi inntöku í Stjórnarnefndir skulu rökstuddar fyrir Forseta og Féhirði hverju sinni og þurfa Forseti og Féhirðir að samþykja þær ákvarðanir fyrir tilkynningu um inngöngu.


    4. grein

    Ákvarðanir varðandi inntöku í minni nefndir skulu rökstuddar fyrir Stjórn N.F.V.Í og þarf Stjórn N.F.V.Í að samþykja þær ákvarðanir fyrir tilkynningu um inngöngu.


    5. grein

    Minni nefnd getur ekki verið starfrækt innan nemendafélagsins nema að stjórnarmeðlimur hafi setið viðtal fyrir formennskuembætti viðkomandi nefndar. Komist stjórnarmeðlimur ekki að taka viðtalið þarf að senda staðgengil hans sem allir stjórnarmeðlimir þurfa að samþykkja.

  • Seðlabanki

    1. grein: Staða, markmið, verkefni

    • A - Seðlabanki NFVÍ er sjálfstæð stofnun í eigu Nemenda Verzlunarskólans. Um stjórn hans fer samkvæmt lögum þessum.
    • B - Aðsetur og varnarþing Seðlabanka NFVÍ er á Marmaranum.
    • C - Meginmarkmið Seðlabanka NFVÍ er að stuðla að stöðugu braski innan veggja skólans en einnig að veita faglega ráðgjöf til Stjórnar, nefnda og allra meðlima NFVÍ.
    • D - Seðlabanki NFVÍ skal sinna viðfangsefnum sem samrýmast hlutverki hans sem seðlabanka. 

    2. grein: Útgáfa og notagildi á seðlum og mynt.

    • A - Verzlo Dollar ($VD) er opinber gjaldmiðill allra nemenda Verzlunarskólans og viðburða sem krefjast brasks.
    • B - Seðlabanki NFVÍ hefur einkarétt til þess að gefa út Verzló Dollar.
    • C - Magn Verzló Dollara í umferð fer algjörlega eftir peningamálastefnu Seðlabankastjórans.
    • D - Verzló Dollar skal helst vera úr sama efni og hefðbundir seðlar á kampavíns klúbbum til þess að hindra skemmd þeirra við alskyns athafnir tengdar og ótengdar markaðnum.
    • E - Verzló Dollar er opinber gjaldmiðill innan skólaveðmála og brasks, kaddý-uppboðsins, Gluggans og alls sem háttvirtur seðlabankastjóri kýs að bralla.

    3. grein: Störf, skyldur, kosningar

    • A - Seðlabankastjórinn er frjáls & fróður. Hans embætti á að gegna ráðgjöf til: Stjórnar, Nefnda & Meðlima NFVÍ.
    • B - Seðlabankastjórinn sendir inn útfyllt formlegt umsóknar-eyðublað á sitjandi stjórn NFVÍ.
    • C - Seðlabankastjórinn er svo valinn af einhverri hæfnisnefnd, föstudagskvöldið fyrir helgina sem er á undan kosningavikunni. Þar með er hann fyrsti einstaklingurinn sem tekur við embætti innan NFVÍ.
    • D - Seðlabankastjórinn gerir það sem hann telur að sé skynsamlegt til þess að örva markaðinn sem mest, sama hvort skapist verðbólga eða óæskilegt ójafnvægi á markaðnum.
    • E - Seðlabankastjórinn býður Féhirði & Forseta svo velkomin í sitt starf eftir að Féhirðir & Forseti hafa verið kosin í sitt starf, í vikunni eftir kosningu Seðlabankastjórans.

    4. grein: Viðburðir og fleira

    • A - Seðlabankastjóri NFVÍ skal í samvinnu við Málfundafélagið og féhirði halda málfundi um fjármál eða hagfræði a.m.k einn á ári, æskilega einn 1 á önn en helst fleiri.
    • B - Seðlabankavikan: Í þessari viku ræður markaðurinn völdum! Marmarinn breytist í spilavíti og seðlabankastjóri og féhirðir halda alskyns viðburði. Í þessari viku fer fram uppboð á alskyns dóti og drasli á marmaranum í einhverju hádegishléinu.  

  • Verzló Óskarinn

    1. grein

    Viðburðurinn heitir Verzló Óskarinn og er haldinn að ári hverju. Tilgangur Verzló Óskarsins er að veita ýmsa titla til einstaklinga/hópa fyrir allskonar afrek/atvik á liðnu skólaári.


    2. grein

    Verzló Óskarinn skal vera haldinn í hléinu á kosningavökunni í Bláa sal þegar beðið er eftir úrslitum úr stjórnarkostningum N.F.V.Í.


    3. grein

    Stjórn N.F.V.Í. velur sérstakan aðila sem titlaður yrði Formaður Akademíunnar og er hann skyldugur til þess að velja 9 meðlimi með sér. Hlutverk akademíunnar er að búa til flokka, velja tilnefningar og sigurvegara úr hverjum flokki.


    4. grein

    Akademían skal vera leynileg og ekki gerð opinber.


    5. grein

    Aðstandendur Verzló Óskarsins skulu vera vel hafðir til höfðs og mæta fínt klæddir.


    6. grein

    Akademían hefur þann kost að skipa sérstakan dyravörð sem hefur vald til þess að meina 

    fólki aðgangi að Bláa sal ef brot er á 5. Grein.


    7. grein

    Rauður dregill skal vera lagður fyrir utan inngang Bláa sals fyrir kvöldið. Hlutverk Marmaranefndar er að sjá um rauða dregillinn.


    8. grein

    Kynnar kvöldsins eru skipaðir af akademíunni. Akadamían skal velja þann fjölda kynna sem þurfa þykir. Hlutverk kynnana er að sjá um að telja upp tilnefningar, tilkynna sigurvegara og bjóða sigurvegara upp í pontu fyrir 30 sekúndna ræðu.


  • Viðurlög

    1. grein

    Verði meðlimur N.F.V.Í uppvís að broti laga N.F.V.Í skal stjórn N.F.V.Í ásamt Hagsmunaráði ákveða refsingu með tiliti til alvarleika brotsins.


  • Kjarnorkumál

    1. grein

    N.F.V.Í. skal ávallt vera kjarnorkuvopnalaust nemendafélag.


    2. grein

    Ákvæði 1. greinar fellur úr gildi ef Menntaskólinn í Reykjavík hefur framleiðslu kjarnorkuvopna og skal N.F.V.Í. boða fyrirvaralaust til kjarnorkuvopnastríðs við Menntaskólann í Reykjavík.

Share by: