FORSETI N.F.V.Í.
Jón Kristófer Ólason
Kæri kjósandi, við Jónar höfum mótmælt allir, lyft 400kg, tvíhöfðað og krumlað. Svo, er ekki tímabært að fá eitt stykki Jón í embætti forseta Verzlunarskóla Íslands?
FÉHIRÐIR N.F.V.Í.
Eiríkur Ísak Magnússon
Ég heiti Eiríkur Ísak og ég býð mig fram í embætti féhirðis. Ég er skipulagður, ábyrgur og traustur. Ég get fullvissað ykkur að ég tek þetta embætti og set það á næsta level. Ég mun dreyfa peningum nemendafélagsins jafnt á nefndir, koma í gegn reglulegum “stöðutékkum" á NFVÍ.is, böllin verða ódýrari og margt margt fleira. Treystu mér kæri Verzlingur ég mun leggja mig allan fram í þetta starf og þú þarft ekki að hafa neinar áhyggjur. Þess vegna bið ég þig að kjósa skynsamlega og merkja X - Eiki í féhirði.
Kristín Birta Jónsdóttir
Gleðilega kosningaviku elsku Verzlingar! Ég heiti Kristín Birta og er að bjóða mig fram í embætti féhirðis. Ég hef alltaf haft gríðarlega mikinn áhuga á fjármálum og tölum og tel ég mig vera fullkomna í þetta starf. Ef þú vilt féhirði sem græjar málin um leið og þau koma, gerðu það rétta og settu X við Kristínu Birtu!
MARKAÐSSTJÓRI N.F.V.Í.
Ísleifur Auðar Jónsson
X - Ísleifur í Markaðsstjóra
RITSTJÓRI VILJANNS
Hrafnkell Tími Thoroddsen
Heil og sæl kæru Verzlingar og gleðilega kosningaviku. Ég heiti Tími og er að bjóða mig fram í ritstjóra Viljans. Ég hef verið í nefndinni núna síðastliðið ár og veit hvað þarf til að keyra þetta áfram og gera gott blað enn betra. Þetta er eitthvað sem ég hef mikinn áhuga á og ég ætla að leggja mig 100% fram í. Ég kem með hugmyndir, metnað og góða stemningu og lofa klikkuðustu blöðum sem þið hafið séð. Og ef við segjum þetta bara eins og er... þá er einfaldlega kominn tími á Tíma. X við Tíma í ritstjóra Viljans 🤝
Davíð Frank
X-Davíð Frank í ritstjóra Viljans
Þú hefur atkvæði að geyma, sem hjá Davíð á heima. Kjóstu mig og þá mun lífið leika við þig.
RITSTJÓRI V93
Nadía Líf Guðlaugsdóttir
X-NADÍA LÍF Í RITSTJÓRA V93
FORMAÐUR NEMENDAMÓTSNEFNDAR
Margrét Ingvarsdóttir
Kæru Verzlingar,
Loksins er komið að því, gleðilega kosningaviku!
Ég heiti Margrét Þóra Ingvadóttir og býð mig fram sem formann Nemó. Núna eftir 2 frábær ár langar mig að taka stóra skrefið. Ég er tilbúin að setja mitt hjarta og sál í þriðja og seinasta skiptið og hafa Nemó eins skemmtilegt og eftirminnilegt fyrir ykkur.
Áfram gakk og settu X við Margréti i formann nemó!
Guðbergur Páll Pálsson
KOSNINGAVIKAN ER HAFIN! Ég veit þið eruð stressuð þegar kemur að því að kjósa, en ég segi, verum örugg og slök því ég veit að ég hef metnaðinn, hæfileikana og dugnaðinn til þess að vera formaður Nemó. Núna hef ég setið í nefndinni í eitt ár og get sagt ykkur að það er langbest, að setja X við Bubba.
FORMAÐUR ÍÞRÓTTANEFNDAR
Óðinn Geirdal Jónsson
Ég heiti Óðinn Geirdal og er að bjóða mig fram í formann Íþró.
Jújú, það er loksins komið að því. Þetta er tækifæri sem ég hef verið að bíða eftir núna í tvö ár. Nefndin sem hefur átt allan minn hug síðan byrjun skólans. Hverjum treystir þú mest til að sjá um Íþró?
FORMAÐUR SKEMMTINEFNDAR
Ísold Embla Ögn Hrannarsdóttir
Hæ ÞÚ - þú fallegi Verzlingur kosningavikan er mætt!!! haleljuUa homie.
Ég heiti Ísold Embla Ögn Hrannarsdóttir og býð mig fram í embætti formanns Skemmtó 2026–2027.
Eftir tvö ár í nefndinni, ótal minningar og fullt af reynslu, tel ég mig meira en tilbúna í hlutverk formanns með gleði, metnaði
og rosalegri ástríðu fyrir félagslífinu og elsku Skemmtó- því þetta er það besta sem eg geri.
Ég vil gera næsta ár stærra, skemmtilegra og fyrir alla
Ég myndi aldrei vilja bregðast ykkur.
X–Ísold í formann Skemmtó
Kári Hlíðberg
X - Kári Hlíðberg í formann Skemmtó!
Tindur Sigurðarson
Tindur no kk
Skilgreining: Hátt uppi, Ískaldur, Grjótharður
FORMAÐUR LISTANEFNDAR
Salka Elín Sæþórsdóttir
Góðan daginn elsku Verzlingur og gleðilega kosningaviku!
Salka Elín Sæþórsdóttir heiti ég og ég býð mig fram í formann Listafélagsins. Eftir að hafa verið í nefndinni í ár tel ég mig vera meira en tilbúna í embætti formanns Listó. Ég hef það sem þarf, reynsluna, metnaðinn og fyrst og fremst ástríðuna. Ég mun leggja mig alla fram!
Settu X- Salka í formann Listó <3
FORMAÐUR MÁLFUNDARFÉLAGSINS
Trausti Magnússon
Sæl kæru Verzlingar. Kosningavikan er loksins gengin í garð og þar með er framtíð félagslífsins í Verzlunarskóla Íslands í ykkar höndum.
Ég heiti Trausti Magnússon og er að bjóða mig fram til formanns Málfundafélagsins og þar af leiðandi stjórn NFVÍ. Ég hef setið í Málfó í 2 ár og bý yfir dýrmætri reynslu. Ég hef brennandi ástríðu fyrir Málfó og mun gera næsta skólaár að því besta hingað til. Ef þið viljið geggjaðar peysur fyrir áramót, mæta í risapartý í tjaldi, Málfó vikur með pökkuðu prógrammi og sigra Morfís, VÍ-mr og Gettu Betur (aftur), þá er ég ykkar maður.
Ekki vera að flækja þetta. Veljið rétt. Setjið X við Trausta í formann Málfó.
Högna Þóroddsdóttir
Hæhæ bestu Verzlingar, Högna heiti ég og er í framboði til formanns Málfó.
Mín helstu markmið eru að gleðja ykkur og gera næsta skólaár það besta hingað til með því að hlusta á ykkur og gefa allt í þetta. Treystið því að ég er 100% tilbúin í þetta verkefni.
X-Högna fyrir gleði, sigur og geggjaðar peysur!















