Samtal
Kæru Verzlingar, nú fara að koma 40 ár síðan leiðtoga fundurinn á Höfða átti sér stað. Fundur tveggja manna sem gjörbreytti andrúmsloftinu um allan heim. Fundur sem sýndi fram á það hversu áhrifamikil samtöl geta verið. Fundurinn sem dró okkur nær endalokum Kalda stríðsins.
Í dag stöndum við frammi fyrir áskorunum, ekki bara við Verzlingar en allir Íslendingar og mannkynið í heild sinni. Þá hefur the Mr. Prez, Halla T, boðað okkur Verzlinga, og alla Íslendinga, í samtal. Í þeirri von um að eitt spjall um framtíð lýðveldisins geti haft áhrif á borð við það spjall sem átti sér stað fyrir rúmum 40 árum síðan.
Verkefnið kallast Samtal og verður haldið 10. október, næstkomandi laugardag. Verkefnið gengur þannig fyrir sig að fólk á aldrinum 16 og upp sest saman niður við borð og talar um hvernig framtíð þau vilja skapa. Það munu sitja tveir „lóðsar” við öll borð og stjórna umræðunni. Hægt er að skrá sig til að taka þátt eða að verða lóðs inn á talasaman.is. Einnig er hægt að finna fleiri upplýsingar um samtalið þar.
Ég hvet alla Verzlinga til að skrá sig, hvort það er að mæta og tala, eða skrá sig sem lóðs. Þetta markar fyrsta skipti sem slíkur viðburður er haldinn í sögu landsins. Því samtalið mun ekki bara eiga sér stað í Verzló, heldur um land allt. Aldrei í heimssögunni hefur heil þjóð komið sér saman til þess bæta land sitt. Við erum að fá það tækifæri, og ég veit að við munum ekki láta það renna okkur úr greipum.
- Jón Kristófer, forseti NFVÍ











