Tíundi Verzlingur Vikunnar

Kæru lesendur, ég er búinn að vera í mjög freaky stuði í vikunni enda Halloween x Kvasisvika. Ég meina hvaða aðrar tilfinningar gætu eiginlega verið í gangi þá? Ionknow. En allavega var skólinn vel skreyttur á mánudeginum og ljóst að Kvasir var komið til að sjá og sigra. Þau byrjuðu vikuna á því að dæla þristum í liðið og á þriðjudeginum héldu þau áfram að fita Verzlinga upp fyrir veturinn með bakkelsi á Marmz. Í hádeginu var síðan lesið upp játningar ásamt heitasta slúðri skólans #OuuShi. Á miðvikudaginn var piñata á marmaranum og það sló algjörlega í gegn meðal Verzlinga.... er það sem ég myndi segja ef það væri öfugi dagurinn haha! #Roasted. Nei ég segi svona en ég held að það hafi ekki stök sál slegið í blessað piñataið. Útgáfa blaðsins var síðan á föstudeginum en á fimmtudaginn komst stóra K (Kvasir) að því, sér til mikillar skelfingar, að það voru feitar prentvillur í öllum blöðunum. Þau eyddu því fimmtudeginum í að klippa, líma og laga 250 blöð by hand! Ekki fyrir hjartveika get ég sagt ykkur. En útgáfan á fös gekk eins og í sögu og þeim tókst líka að bæta örlítið meira á nemendur skólans með köku á marmaranum áður en haldið var inn í helgina. Kvasir... tzakk.
Jæja, ég kynni núna tíunda Verzling Vikunnar, það er DJ ‘eRa eRa‘ (þetta eru svona dj scratches) Anna Ármann! Já, ég er að tala um Önnu Ármann sem var á forsíðu Kvasir blaðsins. Ég er líka að tala um DJ-inn sem spilaði í útgáfunni á marmaranum. Það er nefnilega sama manneskjan! Hún átti því stórleik í vikunni og eftir þetta allt saman var hún mætt niður í bæ á föstudagskvöldið að skemmta fólki með ljúfum tónum. Ég segi það aftur; Ekki fyrir hjartveika gott fólk. Ekki veit ég hvenær Disc Jockey AÁ sefur en það getur ekki verið mjög oft né lengi því hún virðist hafa endalausan tíma þar sem hún er líka á fullu í Íþró. Það er mjög öruggt að segja að Annatune leggi allt sitt að mörkum í félagslífi skólans og bara fyrir almenna vellíðan samfélagsins og það er það sem gerir hana 10. Verzling Vikunnar.
Bosh,
- Óli, ritstjóri Verzlings Vikunnar











