Yfirlýsing
Framtíðin, NFVÍ og Málfundafélag Verzlunarskóla Íslands fyrirlíta hegðunina sem átti sér stað á fótboltaleik skólanna síðasta kvöld.
Á milli skólanna hefur verið, og á að vera, heilbrigður rígur og þar á að gilda gagnkvæm virðing og áralöng vinátta til framtíðar. Nemendafélögin munu draga lærdóm af þessu og vinna saman til að sporna gegn því að slíkt verði endurtekið.
Skólarnir leggja mikið upp úr því að framkoma hvort við annað sé byggð á virðingu og vinskap og því viljum við ekki sjá slíka hegðun aftur meðal félagsmanna okkar.
Til frambúðar munum við leggja stranga áherslu á að koma nemendum saman þar sem virðing og vinskapur ríkir milli skólanna.
- Framtíðin, NFVÍ og Málfundafélag Verzlunarskóla Íslands











