Fjórði verzlingur vikunnar

Somebody call the chiropractor, cuz they're back! Eftir að halda sína fyrstu viku á síðasta ári er Markaðs mætt aftur til leiks, en nú sem stjórnarnefnd. Vikan byrjaði með feitu giveaway og Ping Pong-móti þar sem Tindz skemmtó fokkaði shit upp. Skarpa tókst líka einhvern veginn að brjóta ekki bara einn, heldur tvo spaða. #NotCool #GrrrrMondays. Þriðjudagurinn var síðan huge... þá meina ég HUGE. Nemendaskírteinið var gefið út og vitiði hvað, ég hef ekki séð annað eins! Yfir 140 afslættir og allir 10% or more, sjæææll vinur. Á fimmtudaginn fór síðan fram hið eina sanna busaball VÍ og til þess að gera langa sögu stutta, þá er ekkert ball eins og busaball hahaha. Föstudagurinn var helvíti myglaður tho.
En jæja, að aðalatriðinu. Ég kynni nú fjórða Verzling Vikunnar, það er... Sigrún Sunna í 2. X! Hafiði einhvern tímann litað hárið ykkar bleikt? Ok, kannski. En hafiði gert það óvart? Neibbs, ég hélt ekki. Þegar Sunny hoppaði í showerið með nýja sjampóið sitt hafði hún nefnilega ekki hugmynd um hvað beið hennar. Nokkrum mínútum síðar horfði hún í spegilinn og trúði ekki sínum eigin augun. Var henni að dreyma? Nuh uh. Hárið hennar var orðið bleikt! En í stað þess að brotna saman og flýja land gerði SS það eina rétta. Hún mætti skælbrosandi í skólann eins og ekkert væri eðlilegra. Og það hugrekki, kæru lesendur, er það sem gerir hana að Verzlingi vikunnar. Ef þið viljið heyra í henni til að óska henni til hamingju myndi ég samt ekki vera of bjartsýn þar sem Winrúni tókst líka að eyðileggja símann sinn á fös #Oops.
Þangað til næst,
- Óli, ritstjóri Verzlings vikunnar











