Sjöundi verzlingur vikunnar

Fuuuuukk ég er svo peppaður yfir því að vera Verzlingur rn maður vá. Eftir að horfa á ÚTRÝMING MR music video-ið langar mig helst bara að skutlast niður í bæ og pissa á fyrsta mr-ing sem ég sé. Þetta var það gott. En áður en ég fer í þann leiðangur vil ég að hrósa Rjómanum fyrir videóið sitt og auðvitað bara fyrir Rjóma-vikunna í heild sinni sem var mjög solid. 12:00 létu sig ekki vanta og svöruðu Rjómanum með sínu VÍ-mr lagi og létu líka tónlistarmyndband fylgja með því. Ef þið hafið ekki tékkað á þessu öllu saman nú þegar, þá er kominn tími til. Ég er að segja ykkur það kæru lesendur, þessar tvær nefndir eru að rísa upp frá dauðum í þessum töluðu orðum #Don‘tMissIt. Svo var það gervigreindin Claude sem blandaði sér í málinn þegar það hækkaði aldurstakmark sitt upp í 18+. Þegar Dagur Orri var spurður út í þetta mikla áhyggjuefni svaraði hann faglega: „Þannig ég kemst inn á klúbba en ekki Claude? Nice.“ #ShitHannErNettastur. En allt í allt var þetta mjög flott vika í boði Creams ehf. og Versló hefur aldrei verið jafn tilbúið í VÍ-mr vikuna sem hefst eftir helgi.
Jæja, ég kynni nú sjöunda Verzling Vikunnar, það er Listó CEO, Salka Elín! Þegar ég sá Salkó fyrst hugsaði ég nefnilega: „Wow, she looks like a ray of sunshine!“ En eftir að ég hafði talað aðeins við hana þá hugsaði ég: „Damn, she IS a ray of sunshine!“ Ég er semsagt að segja að það svoleiðis lekur af henni gleði og kærleikur. En það er auðvitað ekki bara persónuleikinn og that drip sem gerir Sölkuroony að Verzlingi Vikunnar. Hún hefur líka lagt ótrúlega mikið af mörkum til félagslífsins í skólanum og gerir enn. Á meðan ég ligg eins og kartafla upp í sófa að skrifa þetta litla blað er Salka niðri í Versló að leiða Listó-hópinn sinn til frægðar og frama. Það eru levels á þessu gott fólk, það eru levels. Haldiði svona áfram Listó, þið eruð í góðum höndum.
God bless,
- Óli, ritstjóri Verzlings Vikunnar











