Sjötti verzlingur vikunnar

Nemó vikur. Nemó vikur hafa allskonar aukaverkanir. Til dæmis getur þú fengið fiðrildi í magann eða borðað yfir þig af vöfflum en algengasti fylgikvillinn er smá kitl í spönginni. Það er öruggt að segja að þessi Nemó vika hafi checkað í öll box. Anyway, það voru busarnir sem settu tóninn með því að sigra möfflu-kappát gegn öðru og þriðja ári á mánudag og á þriðjudag voru Nemó-drengir rjómaðir fyrir allan peninginn. Næst var haldið humongous dance battle: Guðrún og Co VS Högni og Co en þið getið lesið meira um það neðar í blaðinu. Það var síðan komið að því sem fólk var að hrista á sér rassinn af spenningi yfir, það sem fólk uh tja veit ekki en Nemó Trailerinn var sýndur og HOLY SHIT þetta var HUGE og Nemó-leikritið verður HEATHERS. (Trailerinn var níu (9) mínútna stuttmynd sýnd í Kringlubíó by the way btw #ByTheWay.) Á föstudag eyddu menn síðan bara restinni af peningnum sínum á Spin The Wheel. Svo vil ég koma því á framfæri að Bubbi Nemó var á auxinu á Marmz alla vikuna #LordHaveMercy haha.
En jæja, why wait? Ég kynni sjötta Verzling Vikunnar. Give a warm round of applause for Guðrún Inga í 3. F!!! Big G er nefnilega ekki bara háttvirtur og hardworking meðlimur skemmtó, hún er sigurvegari dans bardagans. Ég hef sjaldan séð önnur eins gæði. Það var eins og Göh og hópurinn hennar væri ein heild. Högni og Co stóðu sig eins og hetjur en því miður (fyrir þau) var lið Gugusar bara of sterkt. Mér sýndist bara allur skólinn vera að smitast af dansæði þegar Team G voru að leika listir sínar. Rétt eins og Kevin Bacon í Footloose þegar hann flutti í bæ þar sem hvorki dans né tónlist voru leyfileg kom Gugga í Versló, sagði við Bubba Palla á auxinu: „Play dat shit DJ“ og hóf dans byltingu í Verzló. Síðan er Godrune ekkert eðlilega hress og dreifir brosum og jákvæðni um skólann. Hún er aldrei lítil, alltaf stór og hún er Verzlingur Vikunnar.
Just dance,
- Óli, ritstjóri Verzlings Vikunnar











