Níundi Verzlingur vikunnar

Yo, is this thing on? Já! Vonandi eru þið að njóta haust frísins kæru lesendur. Síðasta vika fyrir frí var 12:00 vika og ég segi nú bara bravó. Eftir að grubba frítt shiz í korterinu á mánudaginn mættu menn með glósubókina á fyrirlestur hjá Gulliossa (mr elegant) í hádeginu þar sem hann fræddi fólk um lífið og tilveruna. Á þriðjudaginn leit Íslandsmeistari í Ping Pong við. Hann vissi greinilega ekki að það er spilað Ping Pong á Marmaranum 24/7 og það stóðu margir Verzlingar í hárinu á honum. Það voru síðan Tindur Skemmtó og Kristján Ágúst sem hreinlega rústuðu honum. Á fim sungu Verzlingar 12:00 lög hátt og snjallt í samsöng en síðan var öllum smalað í Kringlubío í hádeginu því þar var fyrsti þáttur 12:00 26/27 sýndur. Salurinn nötraði hreinlega af hlátrasköllum haha það er kraftur í þessari nefnd kæru lesendur #MuyBien12:00. Það var samt eitt sem stóð út í vikunni eins og flís í rassi. Ég er auðvitað að tala um 2.árs ship accountin á TikTok. Þessi reikningur er nafnlaus en eftir mikla rannsóknarvinnu hef ég komist til botns í þessu máli. Jú, kæru lesendur, mennirnir á bak við ship accountin eru sigurvegarar FIFA mótsins, Gunnar Smári og Dagur Orri #VelLeikiðDrengir. Þetta gat ekki gengið að eilífu haha.
En jæja, nú að máli málanna. Níundi Verzlingur Vikunnar er algjör gaur… Þið þekkið hann líklegast sem fyrrverandi ritstjóra Verzlings Vikunnar eða forseta NFVÍ. Maðurinn er J-J-J-Jón Króla! I mean shiz, Jón er the blueprint fyrir VV kæru lesendur og án hans væri ég ekki einu sinni rapping it. Lots of love Johnny. En hann er ekki bara þessi yndismoli sem brosir til ykkar á Marmz heldur er hann einn harðasti morfís ræðumaður í manna minnum. Ég meina VÍ-mr ræðukeppnin var rafmögnuð og hnífjöfn framan af en síðan gerðist það. Vá vá vá… seinni ræða Jóns kom eins og þruma úr heiðskíru lofti. Hún svoleiðis jarðaði mr-inganna og gerði Królingin að ræðumanni kvöldsins. “Colder than a wiches tit” eins og maður segir á góðri íslensku. Hann JónKró er líka bara without a doubt uppteknasti maður skólans og er ómetanlegur fyrir félagslífið hérna. Forseti NFVÍ, Morfís ræðumaður, listó leikari og nú VV9 #Bæng.
Njótið dagsins,
-Óli, Ritstjóri Verzlings Vikunnar











