Þrítugasti og fyrsti verzlingur vikunnar

Heill og sæll, kæri lesandi. Nú fer skólaárið 25/26 að líða undir lok og lokaprófin nálgast óðum. Svo sem ekkert mikið sem gerðist í þessari seinustu viku vetursins. Marta Gríms týndi, og fann, BENZ lyklana sýna #humbleflex og átti afmæli. Skráningarskjal í nefndarsetu var sett inn á NFVÍ fésbókina, gaman verður að fylgjast með hverjir skrá sig í hvað. Svo verður Gala haldið í dag, athöfn þar sem þriðja ár tekur við spégrímunni í Bláa og djammar svo út í nóttina með kennörum sýnum, svona „one last ride“ moment. Núna næsta mánudag mun Peysó vera haldið, þar munum við á öðru ári klæða okkur upp í sögulega fínt púss og dansa trylltan skottís á Ingólfstorgi. Og það er eiginlega allt og sumt. Ég vildi að ég gæti sagt meira. En, kannski er bara best að taka mjúka lendingu eftir svo gott og mikið ár. Ég vona að þú, kæri lesandi, náðir að lesa yfir Verzling ársins í V92, þar er svona skemmtileg yfirfærsla yfir árið og svoleiðis, allt mjög gaman. 

 

En áður enn ég kem mér að efninu vil ég aðeins taka smá moment hér til að þakka fyrir mig. Takk fyrir mig.

 

En seinasti Verzlingur vikunnar, 31. Viku, 25/26 er okkar besta fráfarandi stjórn. Núna er ég sjálfur á leiðinni í stjórn og er ég mjög spenntur fyrir því, en ég sé það mjög skýrt núna hversu stórt verkefni það er að vera í stjórn. Það er ekki sjálfsagt mál að skipuleggja miðstjórnarferð, busaball og funda yfir næstu skrefum nemendafélagsins hér í Verzló. En ég skal sko segja þér það að okkar besta fólk í stjórninni, the captains of NFVÍ, framkvæmdu það verk með sóma. Ef það væri ekki fyrir stjórnina þá væri allt mjög skrítið í Verzló. Því þetta er í alvörunni stærsta og besta og flottasta og virtasta og fokkit elsta nemendafélag á landinu #fokkemer.


Stjórn NFVÍ 25/26 skipuðu:

Óskar "Missionary Man" Breki - Forseti

Eron - Féhirðir

Helga Sif - Formaður Íþró

Tinna Hja - Formaður Listó

Eva Market - Markaðsstjóri

Steini - Formaður Málfó

Maggi - Formaður Nemó

DT - Formaður Skemmtó

Bjönni Be - Ritstjóri V92

Naima - Ritstýra Viljans


Til hamingju með titilinn VV og takk fyrir ykkur! En stóra spurningin, er ég spenntur fyrir næsta ári? Já, en ég er líka kvíðin. Kvíðin fyrir því að missa okkar besta fólk, ekki bara í stjórninni, heldur líka alla þá nemendur, og lesendur, á þriðja ári. You will be missed. En stjórn NFVÍ er límið sem heldur nemendafélaginu í Verzló saman, og ég get með sanni sagt að þú þarft helvíti sterkt tonnatak til þess að fylla í spor þeirra. 

 

- Jón Króla, ritstjóri Verzlings vikunnar 25/26

 

Hér með er mínu skeiði sem ritstjóri VV formlega lokið, svo fyrir fullt og allt, adios amigos.



(my walk out music ↓)

by Ólafur Fannar Pétursson • 23 October 2026
Yo, is this thing on? Já! Vonandi eru þið að njóta haust frísins kæru lesendur. Síðasta vika fyrir frí var 12:00 vika og ég segi nú bara bravó. Eftir að grubba frítt shiz í korterinu á mánudaginn mættu menn með glósubókina á fyrirlestur hjá Gulliossa (mr elegant) í hádeginu þar sem hann fræddi fólk um lífið og tilverun
by Ólafur Fannar Pétursson • 10 October 2026
Where do I even start? Ef þið misstuð af VÍ-mr vikunni í ár mæli ég sterklega með því að finna tímavél kæru lesendur því orð geta eiginlega ekki lýst þessu. Vikan byrjaði strax á sjóðheitu debate um Bonnie Blue, með eða á móti, #ÉgKemMeð og í hádeginu kom Trúbbi og skemmti Verzlingum. Á þriðjudagstilboðinu voru cösu-ke
by NFVÍ, Framtíðin og Málfundafélag Verzlunarskólans • 8 October 2026
Framtíðin, NFVÍ og Málfundafélag Verzlunarskóla Íslands fyrirlíta hegðunina sem átti sér stað á ...
by Stjórn NFVÍ • 3 October 2026
Kæru Verzlingar, nú fara að koma 40 ár síðan leiðtoga fundurinn á Höfða átti sér stað. Fundur tveggja manna sem gjörbreytti andrúmsloftinu um allan heim. Fundur sem sýndi fram á það hversu áhrifamikil samtöl geta verið. Fundurinn sem dró okkur nær endalokum Kalda stríðsins.
by Ólafur Fannar Pétursson • 3 October 2026
Fuuuuukk ég er svo peppaður yfir því að vera Verzlingur rn maður vá. Eftir að horfa á ÚTRÝMING MR music video-ið langar mig helst bara að skutlast niður í bæ og pissa á fyrsta mr-ing sem ég sé. Þetta var það gott. En áður en ég fer í þann leiðangur vil ég að hrósa Rjómanum fyrir videóið sitt og auðvitað bara fyrir Rjóm
by Ólafur Fannar Pétursson • 25 September 2026
Nemó vikur. Nemó vikur hafa allskonar aukaverkanir. Til dæmis getur þú fengið fiðrildi í magann eða borðað yfir þig af vöfflum en algengasti fylgikvillinn er smá kitl í spönginni. Það er öruggt að segja að þessi Nemó vika hafi checkað í öll box. Anyway, það voru busarnir sem settu tóninn með því að sigra möfflu-kappát
by Ólafur Fannar Pétursson • 20 September 2026
Maneesh on the beat, shabang! Sáuði þetta? Líklega, því að Íþró vikan fór ekki framhjá neinum kæru lesendur. Hún byrjaði með beep-testi fyrir alla gingera skólans (það fólk hefur ekki sál og á að refsa) og GEMIL reddaði fólki síðbúnum summerbody með bekkpressukeppni #BetterLateThanNever. Síðan var hent í blindbox á þri
by Ólafur Fannar Pétursson • 13 September 2026
Somebody call the chiropractor, cuz they're back! Eftir að halda sína fyrstu viku á síðasta ári er Markaðs mætt aftur til leiks, en nú sem stjórnarnefnd. Vikan byrjaði með feitu giveaway og Ping Pong-móti þar sem Tindz skemmtó fokkaði shit upp. Skarpa tókst líka einhvern veginn að brjóta ekki bara einn, heldur tvo spað
by Ólafur Fannar Pétursson • 6 September 2026
Ahhhh, Málfóvika, Málfóvika, Málfóvika... þú sem ert hlý eins og kvika og með fína handakrika. Já, lesandi góður, það vantar aldrei stemmningu þegar Málfó gerir it’s thaaang og þessi vika var engin undantekning. Síðustu daga var maður annað hvort að muncha á fríu sjitti eða að horfa á HUGE trailer (eða bæði hahaha). Þa
by Ólafur Fannar Pétursson • 28 August 2026
Well... that just happened! Nýnemavikan er komin og farin og holy hell hvað hún var freaky. Wolt-pantanir frá Blush? Johnny Prez brókaður? Busar að fara í sleika við skemmtó-plaggöt og fara í blautari sleika við bekkjarfélaga sína? Jájá fokkit. Á fimmtudaginn var síðan blásið í feitustu útgáfu blaðs frá upphafi í Da Bo
by Ólafur Fannar Pétursson • 21 August 2026
Fólk er búið að tala um þetta. Þið funduð það kannski í loftinu að eitthvað hefði gerst, eitthvað stórt. Kannski vissu jafnvel einhver ykkar að það kæmi að þessu... Yes kiddos, það er nýr ritstjóri Verzlings Vikunnar in town. Eftir að okkar ástkæri Jón Króla endurlífgaði virtasta vikulega blað Verzlunarskóla Íslands á
by Forseti NFVÍ • 4 May 2026
Kæru Verzlingar, það gleður mig mikið að fá að tilkynna að hér með hefur ný stjórn NFVÍ tekið við störfum og vinnan við að gera næsta skólaár besta ár allra tíma er hafin. Þetta fólk sem skipar stjórnina er ekki mætt hingað til þess að gantast, þetta fólk, þessi stjórn, er mætt til að sjá og sigra. Ég kynni til leiks,
Sýna meira