Tuttugasti og sjötti verzlingur vikunnar

Jú, kæri lesandi, það var Tíví vika og ef þú þekkir Tívi vikur þá veistu vel að þær eru litttt. Fyrstu tveir dagar vikunar fóru í að jafna sig eftir skíðaferðina, ég get sagt þér það að mánudagurinn var vel slakur og hljóðlátur. Á miðvikudaginn var langa hádegi og Verzlingar gátu fengið sér að éta. Svo var auðvitað samsöngur á fimmtudaginn, ABBA þema og alles. Á fös fóru allir heim. Eitt sem málaði vikuna í nýjum lit voru allir skiptinemarnir sem heimsóttu Verzló í vikunni. Krakkarnir voru frá Ítalíu, Frakklandi og Tékklandi, og það mætti halda að áherslan á tónmenntir þar sé töluvert meiri en hér því það er eins og að allir þarna kunni á píanó, en bara gaman að því.  Þegar allt er uppi staðið var þetta bara róleg og næs vika.

 

Þó svo að VV þessa vikunna sé í styttri kantinum er hann alls ekki af hinum verri. Ég kynni til leiks Verzling vikunnar 26. viku 25/26 er the one and only Dagur Fannar í 3.D. Þetta var nú bara tímaspursmál. Ekki hvort, heldur hvenær Hænsnatemjarinn myndi verða krýndur VV. Nú, fyrir þá sem búa undir steini og hafa eistu fyrir heila og vita ekki hvað DaFah hefur gert... eða nei, ekki gert, heldur gefið frá sér, þá skal ég upplýsa ykkur aðeins. Semsagt The Big D er vel gelaður, blazer klæðandi, stoltur meðlimur GVÍ, fremsti varningssali Verzló, fyndasti maður í leikhóp Nemó og ískaldur stemmingsmaður. Daggur hefur gengið (og rúllað) í gegnum margt og mikið, ég meina það var keyrt á hann í DC, hefur verið keyrt á þig? Nei, ég bara spyr. Daffi er líklegast best þekktur fyrir sitt framlag til Verzló í formi næla. Hann hefur lengi vel selt nælur, sem bera merki VÍ, á göngum skólans og ég hvet alla til að næla sér í eitt stykki ;). Einnig vil ég bæta því við að Dr. Dósi er hæstvirtur starfsmaður á plani á Auto, nýttu þér þessar upplýsingar í hófi, kæri lesandi. Jú, Daggi Fanns er hetjan í hverfinu, ef þú mætir honum á göngum smelltu á hann fimmu því eins og maðurinn sagði „einn á dag, kemur skapinu í lag“.

 

- Jón Króla, ritstjóri Verzlings vikunnar

by Jón Kristófer Ólason 18 March 2026
Mjeeeeeeeeeeeeesss... Viljavika Viljavika (sungið eins og Gamlárspartí lagið). Liðin vika var svo sannarlega Viljinn X Vika, vika. Satt best að segja þá hefur vika aldrei liðið jafn hratt. Það var fyrst mánudagur og svo var ég bara allt í einu mættur upp í skála á AK að segja heitum gellum hvernig ég rústaði MS í Morfí
by Jón Kristófer Ólason 7 March 2026
Yo! Íþró! Vika! Mjeees, ætli það ekki bara? Maður dýrkar þessar Íþró vikur, þær eru bara svo næs og endurnærandi. Eins og ég hef nefnt áður þá er svo gott að mæta á mánudag og sjá Marmz loksins skreytann af einhverjum með alvöru metnað. Íþró er bara svo mikil upp upp og áfram nefnd, ég meina þau gerðu skíðagleraugu sér
by Jón Kristófer Ólason 28 February 2026
Kæri lesandi, rjómaðu bara yfir þig allan, þú mátt það. Rjómavika númer tvö gekk í garð á mánudaginn, vonandi voru sem flestir búnir að jafna eftir Nemó og gátu mætt fersk í skólann. Í hádeginu fengu Verzlingar að freista gæfunnar sínar í lukkuhjóli brúnkunnar. Á þriðjudaginn mættu allir vel brúnkaðir í köku á Marmzzz.
by Jón Kristófer Ólason 23 February 2026
Nemó, ég fæ mér kannski annan það er Nemó! Kæri lesandi núna er Nemó búið, Barbí frumsýnt og Annállinn búin að líta dagsins ljós. Hvað meira er eftir? Maður spyr sig. En eins og vitur maður sagði „mundu bara að njóta en ekki þjóta“, og við skulum halda okkur við þau orð og ekkert vera að dýfa okkur ofan í neina framtíð
by Jón Kristófer Ólason 14 February 2026
Hææææææ, omægad, kæri lesandi, hva segirðuuu? Sorrí, en ég bara í svo flirtatious skapi, það er nú einu sinni Valentínusarvika í boði Skemmtó og Listó. Ástin streymdi um ganga skólans í vikunni rétt eins og ástin sem streymdi um ganga skólans. Vikan hófst á kveðskapareinvígi Dóra og Dögna yfir ást Ísoldar, Dögni Hignus
by Jón Kristófer Ólason 11 February 2026
Komdu sæll og fagnandi, kæri lesandi, góð vika... GÓÐgerðarvika! Vikan byrjaði á back to basics fyrir Stjórnina þar sem Stjórnin var busuð og sat inni í tímum hjá fyrsta ári #vandró. Þriðjudagurinn var algjör keyrsla (pun intended), í hádeginu settu Eva og Gugga upp pennana og teiknuðu skopmyndir af öllum þeim Verzling
by Jón Kristófer Ólason 30 January 2026
Velkominn kæri lesandi, ný vika kallar á glænýjan Verzling Vikunnar. Í þessari viku bauð stjórnin upp á nýjung í vikum og hélt fyrstu 2. Ár VS 3. Ár viku í sögunni. Mánudagurinn byrjaði sterkt fyrir 2. ár þar sem Ísleifur og Kári Hlíð rústuðu 3. ári í kappáti. Í hádeginu var haldin Gettu Betur keppni þar sem 3. árið ba
by Jón Kristófer Ólason 24 January 2026
Málfó vika að baki og hvar er þakið? Málfundafélag Verzlunarskóla íslands reif það gjörsamlega af. Þeir festu hákarlablöðruna við þakið og flugu burt með það eins og gemli gemli í Up. Talandi um gemla gemla mætti trúbbi á Marmarann í hádeginu á mán, ekkert eðlilegaa næss. Hann tók nokkra sígilda slagara og kom manni al
by Jón Kristófer Ólason 18 January 2026
Sælir Nilli og gleðilega helgi! Vika, vika, vika, alltaf vika. HennesVÍ átti stórleik þar sem nefndin hélt fyrstu HennesVÍ-viku sögunnar og ég skal segja þér það, kæri lesandi, að sögubækurnar verða afar merkilegar í ár. Vikan byrjaði á mánudegi #didnotseethatcoming, Verzlólore-Kahoot í Bláá sem Tobbi vann og sleikglím
by Jón Kristófer Ólason 9 January 2026
Good to be back! Jæja, kæri lesandi, Núna stöndum við á tímamótum, 2025 er búið spil og nú tekur 2026 við. Þetta er tíminn þar sem fólkið setur sér markmið fyrir árið, stjórnin setti sér greinilega markmið og það var að byrja BIG ‘26 með bombu! Vikan byrjaði á þriðjudag með Clash Royale mótið í Bláa, mótið var þó hald
by Jón Kristófer Ólason 5 December 2025
Hæhó og gleðileg lokapróf! Jólavika að baki og prófavika tekur við. Núna, kæri lesandi, er eins gott að læsa inn í lærdómnum og leggja þig allan fram til að jarða þessi lokapróf. Nú, 15. útgáfa Verzlings vikunnar átti að vera frekar tómleg þar sem það var engin vika skipulögð í þessari viku en sem betur fer voru tveir
by Jón Kristófer Ólason 1 December 2025
Viljavikan gaf mér lífsvilja. „Mér fannst þetta flott vika“ sagði Steini Málfó þegar spurður um málið og ég verð að taka undir. Mánudagurinn byrjaði sjúúúúklega vel með Jól Króla í kóngasófunum að láta drauma Verzlinga sem settust í kjöltu hans rætast. Svo í hádeginu vorum við svikin þegar allur skólinn mætti sp
Sýna meira